mánudagur, maí 21, 2007
Bæ bæ blogg

Jæja, þá er stóra stundin komin. Við erum búin að pakka saman dótinu okkar og tilbúin að setja það inn í gáminn sem kemur á miðvikudag. Flugið heim er svo á fimmtudagskvöldið og við erum að farast úr spenningi.
Verðum þó að viðurkenna að þegar stundin er farin að nálgast að það mun verða margt í Prag sem við eigum eftir að sakna. Röltum úti í garði eftir kvöldmat í 25°C hita og horfðum á sólina setjast - en þó meira á hundana út um allt.
Eins og margir vita erum við búin að kaupa okkur íbúð á Íslandi og flytjum að sjálfsögðu í Hafnarfjörðinn. Við þurfum að mála og svo seinna meir taka úr gámnum og því allir velkomnir að koma í heimsókn (svo lengi sem þið lyftið pensli eða kassa :-)
Takk fyrir að fylgjast með okkur - erum samt guðs lifandi fegin að vera hætt þessu bloggveseni, ekki beint verið þau duglegustu. En Alli vill gjarnan röfla svo hann væri nú alveg vís til þess að byrja með nýtt blogg.. við látum þá vita hér.
Na shledanou (örugglega í síðasta skipti),
Sylvía & Alli
föstudagur, apríl 06, 2007
Tveggja ára..
Í dag erum við skötuhjú búin að búa í Tékklandi í tvö ár. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Eins og flestir vita þá verða árin ekki fleiri og við flytjum á klakann í vor. Farið að hlakka rosalega til!

Farin að njóta veðursins í Prag á meðan við enn getum,
Sylvía & Alli

Farin að njóta veðursins í Prag á meðan við enn getum,
Sylvía & Alli
fimmtudagur, mars 29, 2007
Kraká
Síðustu helgi smelltum við okkur í heimsókn til Kraká í Póllandi. Aðaltilgangur ferðarinnar var nú að skoða Auschwitz en skipulögðum þetta þó þannig að við hefðum smá tíma í borginni.
Eftir smá vesen við að finna hótelið kom í ljós að staðsetningin á því var alveg frábær og út um svefnherbergisgluggann horfðum við beint yfir á Wawer'inn - eða aðalkastalann.
Hérna eru myndir teknar frá hótelinu..

Nokkrar aðrar myndir frá Kraká..

Gaman að segja frá því að við kveiktum aðeins á sjónvarpinu um kvöldið og komust að þeirri niðurstöðu að talsetning í Póllandi væri sú allra slakasta. Það virðist bara vera einn maður á öllum stöðvunum sem talar fyrir alla, jafnt konur sem karla! Hann talar meira að segja fyrir teiknimyndirnar. Síðan heyrir maður enskuna lágt undir án þess að geta fylgt henni eftir, vonlaust!
Morguninn nýttum við svo í rölt um miðbæinn og verðum við að segja að Pólland í heildina kom okkur mjög skemmtilega á óvart. Allir rosalega þjónustulundaðir, enskan góð og snyrtilegt yfirbragð yfir öllu. Maður er kannski með einhverja staðalímynd í kollinum en ekki spurning að við hvetjum fólk til að heimsækja landið.

Alli & Sylvía

fimmtudagur, mars 08, 2007
Rocky
Það hefur nú eitthvað drifið á daga okkur síðan við skrifuðum síðast. Helgina 16.-19. febrúar kom Steini vinur Alla alla leið frá Boston, USandA. Á meðan hann var hérna var að sjálfsögðu skoðað Prag og svo lögðum við leið okkur til Þýskalands og Dresden heimsótt enn einu sinni. Við gripum tækifærið og pöntuðum hringana okkar, sem við erum svo að fara að sækja á morgun.
Steini í göngunum á leið upp á topp Frúarkirkjunnar..

Við á göngu meðfram ánni..

Lögðum okkur fyrir framan einhverja styttu, þurftum svo að forða okkur þar sem stalkerinn var svo ofvirkur með myndavélina..

Ekki slæmt að búa þarna..

Og Alli hélt áfram að herma eftir styttum..

Steina leist bara nokkuð vel á Prag, að við höldum, en hann var hins vegar ekki með myndavél svo hann sýnir engum hvað var flott. Við erum nokkuð örugg á því að það er hægt að kæra fólk fyrir myndavélaleysi í Prag. Að sjálfsögðu var skellt sér út á lífið en að íslenskum stíl og því farið að róast í Tékklandi þegar við fórum loks út.
Helgina eftir heimsókn Steina fórum við skötuhjú í heimsókn á klakann. Það var mjög stutt stopp í þetta skiptið svo ekki gafst tækifæri á að hitta fleiri. Við vorum hins vegar rosa dugleg og komum miklu í verk - við ræðum það betur síðar ;-)
Sjáumst síðar krókódíll,
Sylvía, Alli & Adrian

miðvikudagur, febrúar 07, 2007
Ekki alveg málið..
Ég mætti í lögfræðitímann minn (property law) á þriðjudaginn og fékk þá í hendurnar þessa kennsluáætlun..

Langa sögu stutta - ég fór í dag og fann mér annan áfanga og hætti við þennan. Alli var víst ekki alveg nógu sáttur með þennan. Hvað ætli það þýði ef þessi kennari er með "oral exam"?
Yfir og út,
Sylvía

þriðjudagur, janúar 30, 2007
Dettur enginn titill í hug
Það hefur eitthvað aðeins verið að gera hjá okkur undanfarnar vikur. Þarsíðustu helgi smelltum við okkur í göngu í Þýskalandi, maður er nú aldrei svikinn af náttúrunni þar. Að vísu fórum við tveimur dögum eftir óveður og þar af leiðandi mikið af brotnum trjám sjáanleg á leiðinni. Tókum nokkrar myndir.
Erum að gera okkur klár..

Víða mátti sjá afleiðingar óveðursins..

Alli fann "náttúrulegan" göngustaf sem vakti furðulega mikinn áhuga hans..

Guðjón tapaði sér..

Alli að horfa yfir lýðinn.. eða skóginn..

Svakaleg hengiflug og Alla ekki sama þegar Sylvía fór að hoppa yfir á glórulausum stöðum!!

Við vorum nú ekki viss hvort þið vilduð virkilega sjá þessa, en það er rétt að taka fram að fallið er alveg jafn mikið og það lítur út fyrir að vera - og göngustígúrinn alveg jafn mjór..

En við komumst alla leið :)

Svo núna síðustu helgi var að sjálfsögðu legið yfir handboltanum og svo horft á pre-eurovision keppnina. Vorum með Íslendinga í heimsókn (ásamt tékkneskri kærustu) og horfðum, tja ekki svo stolt, á söngfuglana. Bróðir eins sem var hérna í heimsókn var sem sagt að keppa.
Vorum alveg á því að Jónsi og hans atriði hlyti að vera það hallærislegasta sem við höfum séð, í fyrsta lagi var útlitið á honum algert slys og hvað var þetta með honum.. vændis-nunnur?
Fyrr um daginn höfðum við samt farið í göngu hérna innan Prag - skoðað semsagt annan kastala hérna í Prag sem heitir Vysehrad. Gaman að sjá Prag þakkta í snjó, að vísu er hann farinn núna og farið að hlýna. Höfum aldrei séð snjó sem endist í meira en viku hérna.
Setjum myndir inn síðar - erum farin að borða,

föstudagur, janúar 19, 2007
Snillingur!
Verð bara að monta mig og láta ykkur vita að konuefnið mitt er snillingur. Hún var að fá úr prófunum og hún er með eitt -A og fjögur A. Á íslenskunni þýðir þetta meðaleinkunn á bilinu 9,5 til 10!!Það verður flott þegar hún er búin með námið. Ég sé fram á að geta sest í helgan stein og spilað golf allan daginn meðan hún sér fyrir okkur. Ljúft!
- Alli